top of page

Um Söngstund

Record Player

Söngbókin Söngstund

Söngbókin Söngstund er lokaverkefni Kristbjargar Ástu Viðarsdóttur nemanda á Skapandi tónlistarmiðlunarbraut í Listaháskóla Íslands. Söngbókin er hugsuð fyrir dvalar- og hjúkrunarheimili og undirleikur með og án söngs fylgir með.

Markmið verkefnisins er að efla tónlistar- og söngstundir á dvalar- og hjúkrunarheimilum og auðvelda starfsfólki að halda söngstundir án þess að búa yfir nokkurskonar tónlistarkunnáttu.

 

Lögin í bókinni voru valin af íbúum dvalar- og hjúkrunarheimila á Snæfellsnesi. Jaðar í Ólafsvík, Fellaskjól í Grundarfirði og Dvalar- og húkrunarheimilið Stykkishólmi.

 

Undirleikur

Gítar, píanó og harmonika: Bjarni Karlsson

Píanó: Þorkell Máni Þorkelsson

Trommur: Jón Breiðfjörð

Bassi: Friðrik Örn

Söngur og gítar: Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir

Upptaka og hljóðblöndun: Haukur Páll Kristinsson

bottom of page